|
Undirstöðuatriði
árangursríkrar kennslu
Principles
of Teaching for Quality Learning |
| 









|
Reynsla
PEEL-kennara hefur margoft leitt í ljós að
eftirfarandi 12 atriði eru mikilvæg og árangursrík
í kennslu. Þessi atriði hafa gengið
vel þegar byggja á upp góðan bekkjaranda
og að auka skilning nemenda á náminu.
Þetta er það sem PEEL-kennarar hafa í
huga þegar þeir undirbúa kennslu og á
meðan á kennslu stendur.
Hvert atriði er hægt að útfæra
á ýmsa vegu, eftir aldri og getu nemenda.
|
- Að deila hæfileikum með nemendum og byggja
upp sameiginlegan skilning nemenda.
- Að leita að tækifærum til að
láta nemendur uppgötva og finna sjálf
út hluta (eða allt) af því sem
þau eru að læra um, frekar en að láta
þau lesa eða heyra um það. Þetta
er auðvitað ekki alltaf hægt, en lítil
atriði, eins og að láta nemendur skoða
mynd af víkingum og láta þá
finna út hvernig þeir hafa búið,
miðað við það sem þeir sjá
á myndinni, vekur nemendur til umhugsunar.
- Að bjóða uppá val og sjálfstæða
ákvörðun. Nemendur upplifa frelsi ef þeir
hafa eitthvað val um hvað þeir vinna og
hvernig þeir vinna það. Valið getur
verið um hvaða hluta verkefnis sem þau vinna,
styrkleika verkefnis (fer eftir getu nemandans) og/eða
hvernig verkefninu er skilað (ritgerð, myndasýning,
leikrit eða annað).
- Bjóða uppá fjölbreyttar kennsluaðferðir
sem auka sjálfstæði og sjálfsmynd
nemenda. Árangursrík vinna með gagnvirkum
umræðum, spurningum, hlutverkaleikjum og skapandi
starfi kemur fram í auknu sjálfstrausti
og aukinni getu til að glíma við skrifleg
verkefni.
- Efla umræður sem hvetja nemendur til að
rannsaka, íhuga og spyrja spurninga um álitamál.
Að spyrja spurninga eins og ,,Hvað ef....?"
eykur víðsýni og skapandi hugsun nemenda.
- Hvetja nemendur til að læra af spurningum
og umræðum annarra nemenda. Virkni og orðræða
bekkjarins kemst á hærra stig þegar
hugmyndir og umræður eru á milli nemenda
heldur en þegar nemandi ræðir við
kennara.
- Búa til bekkjaranda sem hvetur nemendur til að
taka áhættu og koma með nýjar
hugmyndir. Nemendur eiga ekki að bíða eftir
réttu svari hjá kennara heldur að geta
og þora að koma með frumlegar og nýjar
hugmyndir án þess að vera niðurlægð
eða strítt af öðrum nemendum.
- Nota fjölbreytt vitsmunaleg og ögrandi verkefni.
Þau krefjast orku og úthalds og það
þarf að breyta þeim reglulega til að
þau verði alltaf fersk og fjölbreytileiki
eykur áhuga nemenda.
- Nota kennsluaðferðir sem eru sérstaklega
gerðar til að efla árangursríkt
nám nemenda. Eitt af því sem PEEL-kennarar
hafa að leiðarljósi er að nemendur
geri sér grein fyrir hvað séu slæmar
námsvenjur og góður
námsagi.
- Þróa vitund nemenda um hvernig ný
þekking tengist fyrri reynslu og að efla skilning
þeirra á hvernig þeir geta sett allt
námið í samhengi. Mörgum nemendum
finnst hlutverk þeirra vera að klára
verkefnið og þeir einblína á það
sem þeir eru að gera en ekki hvers vegna þeir
eru að gera það. Þeim vantar tenginguna
og að sjá námið í stærra
samhengi.
- Ræða reglulega um hugmyndir nemenda um árangursríkt
nám og leggja áherslu á að nemendur
læri að læra. Nemendur hafa lítinn
orðaforða um nám og það getur
verið mjög gagnlegt að byggja upp orðaforða
þeirra með því að ræða
við þau um nám og góðan
námsaga.
- Stuðla að því að námsmat
verði hluti af náminu. Nemendur (og kennarar)
upplifa próf og námsmat oft sem nokkurs
konar endapunkt á hverju verkefni eða námsönn.
Að byggja upp skilning þar sem námsmat
er hluti af námsferlinu dregur athygli nemenda
frá því sem þau gerðu eða
gerðu ekki á prófinu og einnig að
nemendur taki ábyrgð á því
sem viðkemur námsmatinu. Kennarar þurfa
líka að hafa í huga þegar þeir
leggja áherslu á fjölbreytt nám
að það komi líka fram í fjölbreyttu
námsmati.
|
|
|
|
| |
©Eygló
R. Sigurðardóttir
Þýtt og staðfært með leyfi frá
Ian Mitchell, Monash University, Australia |
|