| Þessi
vefur er kynning á PEEL-verkefninu.
Vefurinn er lokaverkefni mitt á námskeiðinu
,,Rannsóknir í skólastarfi" í
KHÍ haustið 2006. Þar vaknaði áhugi
minn á starfendarannsóknum og rannsóknum
í skólastarfi (Teacher Research).
Á vorönn 2007 bætti ég svo námsmatshluta
við þennan vef.
Ég er grunnskólakennari og er í seinni
hluta mastersnáms í Kennaraháskóla
Íslands.
Mér
fannst mjög spennandi verkefni að tengja saman
fræðin úr háskólanum og kennsluna
í grunnskólunum. Sem kennari finnst mér
reynslan vera sú að kennarar eru ekki nógu
kunnugir þeim rannsóknum sem fram fara í
háskólum um nám og kennslu. Í
grunnskólum landsins eru ótal þróunarverkefni
í gangi og kennarar eru að gera margt áhugavert
og skemmtilegt sem þörf væri á að
koma betur á framfæri.
PEEL-verkefnið
byggir á hugmyndum frá kennurum um kennsluaðferðir
og leiðir sem ganga vel í kennslu og námsaðferðir
nemenda. Kennararnir hittast reglulega og ræða
faglega um kennsluna og miðla hugmyndum sín á
milli. Þeir skrá stuttar sögur um það
sem vel gengur í kennslu og miðla þannig
góðum hugmyndum til annarra kennara.
Gaman
væri að búa til svipaðan gagnabanka
og PEEL-kennarar hafa gert, með sögum íslenskra
kennara. Þar kæmu fram ýmis verkefni
og kennsluaðferðir sem íslenskir kennarar
eru að prófa og þróunarverkefni
sem eru í gangi víða í skólum
landsins. Kennarar gætu þannig miðlað
reynslu sinni og lært af öðrum kennurum.
|