Dæmisögur kennara í PEEL-verkefninu

Sögur/verkefni frá PEEL-kennurum

Upplýsingar um PEEL
Hvað gera PEEL-kennarar?
Vandamál sem kennarar þurfa að glíma við
Undirstöðuatriði í kennslu
Í hverju felst góður námsagi?
Hvað eru slæmar námsvenjur?
Dæmisögur PEEL-kennara
Rannsóknir í skólastarfi
Upplýsingar um vefinn
Heimildir

 Í gagnabanka PEEL eru núna um 1300 sögur frá kennurum þar sem þeir fjalla um sína reynslu og nefna dæmi um það sem hefur gengið vel við að virkja nemendur og fá þá til að bera meira ábyrgð á námi sínu. Sögurnar eru flokkaðar eftir vandamálum, kennsluaðferðum, námsgreinum o.fl. til að auðvelda leit í gagnagrunninum.
Eitt af því mikilvægasta sem PEEL-kennarar gera er að hittast reglulega og ræða faglega um nám og kennslu. Það gera þeir til að minna sig á að halda áfram að prófa nýjar hugmyndir í kennslu og einnig að fá umræður um það sem þeir eru að gera í kennslustofunni. Að prófa nýjar hugmyndir kallar fram jákvæðar og neikvæðar tilfinningar og þær neikvæðu eru oft áhrifameiri hjá kennurum en með því að ræða hugmyndirnar við aðra kennara þá koma fram jákvæðari sjónarmið sem eru hvetjandi fyrir kennarann. Að deila nýjum hugmyndum með öðrum á meðan þær eru ferskar og nýjar hjálpar kennurum að prófa sig áfram og þeir geta þá fengið ráð og tillögur frá öðrum kennurum um hvernig hægt væri að breyta og bæta aðferðirnar. Fyrir hina kennarana er einnig gagnlegt að kynnast nýjum aðferðum og fylgjast með hvað hinir eru að gera í kennslustofunni.

Hér eru dæmi um nokkrar sögur sem eru í gagnabanka PEEL, en þegar kom að því að velja sögur var mér mikill vandi á höndum því að sögurnar eru svo margar og því erfitt að velja. Ég ákvað að velja sögur sem ég tel að gæti gagnast mér í kennslu, sem grunnskólakennari á miðstigi.

  

 VVL- Veist? - Vilt vita? - Lært?
Aðferð sem byggir á þremur lykilspurningum: Hvað veistu? Hvað viltu vita? og Hvað hefurðu lært?

Að finna út hvað þú vilt vita
Nemendur þurfa að finna út hvað þeir vilja vita um efnið.
Að hengja spurningar á vegginn
Spurningar nemenda eru hengdar upp á vegg á meðan verið er að vinna verkefnið.
Skapandi skrif
Aðferð til að vinna með skapandi ritun.
Upprifjun fyrir próf 
Hvernig hægt er að undirbúa nemendur í síðasta tímanum fyrir próf.
,,Heit kartafla"
Aðferð til að kenna ritun sem reynir á samvinnu og hugarflug nemenda.
 
©Eygló R. Sigurðardóttir
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia