| Í
upphafi verkefnis eru nemendur látnir skrifa niður
eina eða tvær spurningar um það sem
þeir vilja vita um það sem fjalla á
um. Þeir skrifa spurningar á stórt blað
(eina spurningu á hvert blað) og hengja það
síðan uppá vegg. Gott er að hafa sérstakan
spurningavegg. Spurning eru tekin niður þegar
svarið við henni er fundið. Kennarinn notar
spurningarnar sem útgangspunkt þegar hann fjallar
um efnið, t.d. ,,Nú skuluð við skoða
spurninguna hennar Jónu". Í lok tímans
getur kennarinn spurt: Hvaða spurningum erum við
búin að svara í dag?
Spurningaveggurinn
getur þróast og breyst á meðan á
verkefninu stendur og nemendur og kennarar geta bætt
á vegginn ýmsum hugtökum sem þeir
hafa lært um efnið og fleiri spurningum sem vakna
á meðan verið er að fjalla um efnið.
Ef
bekkurinn er ekki alltaf í sömu stofunni þegar
verið er að fjalla um ákveðið verkefni
er ágætt að útbúa spurningabók
eða lista þar sem spurningarnar eru límdar
inní og þá er hægt að fara
með spurningabókina á milli kennslustofa.
Í lok hverrar kennslustundar er farið yfir spurnigalistann
og skoðað hvaða spurningum hefur verið svarað.
|