Þetta verkefni
reynir á samvinnu og hugarflug nemenda. Skilyrði
er að hver hópur sé með sitthvort
verkefnið og svo er verkefnunum skipt á milli
hópa. Nafnið, heit kartafla (blaðið),
er dregið af því að það er
bara hægt að halda á heitri kartöflu
í smá stund sem vísar til þess
að verkefnið stoppar stutt hjá hverjum hóp.
Bekknum
er skipt í nokkra hópa, 3-4 í hóp.
Hver hópur fær blað og blýant.
Hver
hópur eitt verkefni, þar sem leysa á
eitthvað vandamál eða svara opinni spurningu.
Spurningin er skrifuð efst á blaðið.
Hver
hópur ræðir svo saman og skráir
niðurstöður sínar á blaðið.
Eftir
stutta stund er blaðið fært á þann
hóp sem er vinstra megin.
Hver
hópur les nýja verkefnið og svörin
sem komin eru á blaðið. Þeir ræða
saman og bæta við sínum hugmyndum og
svörum á blaðið.
Þetta
er svo endurtekið þangað til allir hóparnir
hafa glímt við öll verkefnin.
Niðurstöðurnar
er svo hægt að hengja upp á vegg og gera
þær þannig sýnilegar þannig
að hægt sé að nýta þær
í fleiri verkefnum. Einnig er hægt að
láta þann hóp sem fyrstur fékk
verkefnið, taka saman niðurstöður og
skila endanlegri skýrslu eða veggspjaldi þar
sem fram koma niðustöður allra hópanna.