|
PEEL
- sögur kennara
Skapandi
skrif |
| 









|
Þetta
verkefni er hægt að vinna með nemendum á
öllum aldri í ritun. Það hvetur til
skapandi skrifa og eykur orðaforða nemenda. Verkefnið
er unnið í hópavinnu og stuðlar þannig
að umræðu um lýsingarorð, orðflokka
og fjölbreytni tungumálsins. Nemendur eru hvattir
til að nota sjaldgæf og frumleg orð og forðast
algeng lýsingarorð eins og stór og lítill.
Verkefnið
er unnið þannig: |
- Eftir
að kennarinn hefur rifjað upp orðflokka, t.d.
lýsingarorð, þá skrifar hann eina
setningu upp á töflu, t.d. ,,Húsið
var upp á hæðinni".
- Þá
ræðir kennarinn við nemendur um setninguna
og hvaða orðflokkum orðin tilheyra.
- Nemendum
er svo skipt í fáa stóra hópa
með því að númera nemendur
1, 2, og 3 (8 í hverjum hóp í 24
barna bekk).
- Skiptið
svo orðunum á milli hópanna þannig
að t.d. hópur 1 fær orðið ,,húsið",
hópur 2 orðið ,,upp" o.s.frv. Hver
hópur fær blað þar sem þeir
eiga að skrifa upp öll lýsingarorð
sem þeim dettur í hug og tengjast orðinu
þeirra. Allir þurfa að skrifa á
sitt blað. Gefið 10 mínútur í
þetta.
- Næst
er hópunum breytt þannig að í
hverjum hóp fá allir númer frá
einum uppí átta. Hópur 1 vinnur svo
saman, hópur 2 o.s.frv. Þá eru komnir
8 nýir hópar og í hverjum hóp
eru allar hugmyndirnar samankomnar úr hinni hópaskiptingunni.
- Nú
eiga allir hóparnir að skrifa 5-7 setningar
um húsið á hæðinni og nota
þau orð sem þau hafa frá öllum
í hópnum. Gefið 15-20 mínútur
í þessa vinnu.
- Að
lokum lesa hóparnir upp sínar setningar
og deila þeim með öðrum nemendum.
Nemendur
hafa gaman af skapandi skrifum og þetta verkefni krefst
samvinnu og að nemendur hlusti á aðra og
geti miðlað sinni þekkingu til annarra nemenda.
|
|
|
| |
©Eygló
R. Sigurðardóttir
Þýtt og staðfært með leyfi frá
Ian Mitchell, Monash University, Australia |
|