| Í
síðasta tímanum fyrir próf fer
kennarinn yfir efnið (blaðsíður eða
kafla) með nemendum og spyr þá hvað
sé mikilvægast í þessu efni. Það
er skráð á töfluna svo að nemendur
geti lært hvernig á að glósa og
finna út aðalefnið. Á meðan kennarinn
skrifar eiga nemendur að fylgjast vel með og ekki
skrifa upp eftir kennaranum. Kennarinn ræðir við
nemendur um hvers vegna þetta séu aðalatriðin
og kennir þeim þannig að skrifa glósur.
Í lok tímans eru glósurnar þurrkaðar
út af töflunni og nemendur fá það
sem heimavinnu fyrir prófið að skrá
niður aðalatriðin úr kaflanum á
A4-blað. Þeir eiga að koma með það
í prófið og það gildir sem hluti
af einkunn á prófinu, t.d. 10%
Þannig
læra nemendur að glósa og finna út
og skrá aðalatriðin og hversu mikilvægt
er að nota tímann rétt þegar lært
er fyrir próf. Þeir læra líka
fljótt mikilvægi þess að hafa góðar
glósur og ekki er verra að geta hækkað
einkunnina á prófi með því
að skila góðum glósum þegar
þær gilda sem hluti af einkunn.
|