PEEL-kennarar
hafa skilgreint nokkrar slæmar námsvenjur sem
þeir hafa tekið eftir að margir nemendur sýna
og þeir hafa þróað aðferðir
til að draga úr þessari hegðun. Þeir
hafa skipt þessum slæmu námsvenjum í
8 flokka:
Yfirborðsleg athygli. Nemendur sýna verkefninu
litla athygli og eiga erfitt með að tengja það
við eigin reynslu og þekkingu. Þeir eiga
erfitt með að greina aðalatriði frá
aukaatriðum.
Hvatvís athygli. Nemendur veita verkefnum mismikla
athygli og því verður vinna þeirra
gloppótt og sundurslitin.
Ókláruð vinna. Nemendur hætta
við verkefni áður en þau eru fullunnin.
Ekkert frumkvæði við að sannreyna svör
og ljúka fullkomlega við verkefnið.
Óviðeigandi
notkun. Byrja strax að nota aðferð eða
leið sem er óviðeigandi án þess
velta fyrir sér hvað sé besta leiðin
til að vinna verkefnið.
Yfirborðsleg
athygli á fyrirmælum. Vinna eitt í
einu án þess að velta fyrir sér
heildarmyndinni og tilgangi verkefnisins, hvers vegna
það er unnið og hvað sé skynsamleg
niðurstaða.
Sitja
föst. Taka enga ábyrgð og hafa engin úrræði
til að komast áfram í verkefni án
þess að biðja um aðstoð. Eiga erfitt
með að sýna sjálfstæði
og sjálfsbjargarviðleitni og skoða leiðbeiningarnar
aftur og reyna þannig að komast að því
hvar þau eru stödd og hvað skal gera næst.
Sóknarleysi.
Nemendur hafa enga tilhneigingu til að skilgreina
eigin hugmyndir og skilning og það sem skiptir
máli í því sem kennari segir
eða stendur í bókum. Þeir geta
ekki tengt námið í skólanum við
sitt eigið viðhorf og sína skoðun.
Gagnslaus
endurskipulagning. Nemendur breyta útskýringum,
misskilja og læra reglur vitlaust.