Á forsíðu PEEL-námsmat
Upplýsingavefur um PEEL-verkefnið
Upplýsingar um námsmatsvef PEEL
Hvað er árangursríkt námsmat?
Jákvætt og neikvætt námsmat
Leiðsagnarmat - Frammistöðumat - Sjálfsmat/jafningjamat - stöðugt alhliða námsmat
Reynslusögur PEEL-kennara um námsmat
Heimildir

Að velja sér námsmatsform

Í þessu verkefni fá nemendur tækifæri til að hafa eitthvað að segja um hvers konar námsmat er notað til að sýna fram á það sem þeir hafa lært um efnið. Það gefur nemendum tækifæri á að sýna sérstaka hæfileika og áhuga sinn (t.d. tölvuþekkingu) á ákveðnu sviði tengt því námsefni sem verið er að fjalla um. Þannig geta nemendur tengt nýtt efni við eigin þekkingu, reynslu og áhuga.

Áherslan er ekki á útfærsluna sjálfa eða námsmatsformið, heldur á það hvernig nemandanum tekst að sýna og sanna þekkingu sína á efninu. Hann þarf að geta sýnt fram á að hann kunni og skilji efnið sem fjallað er um. Það getur hann t.d. gert með því að skrifa á blað, gera veggspjald, myndband, leikþátt, munnlegan flutning (halda fyrirlestur) eða með myndasýningu (PowerPoint).

Hægt er að láta nemendur í upphafi koma með hugmyndir (brainstorming) um hvers konar námsmat kæmi til greina. Þá ræðir kennarinn við nemendur um hvernig þeir gætu tengt námið við sína sérþekkingu og það eykur áhuga þeirra á því viðfangsefni sem fjallað er um. Reynsla PEEL-kennara hefur sýnt að mjög margir nemendur velja sér námsmat sem tengist tölvum. Hægt er að láta nemendur velja sér t.d. tvær eða þrjár námsmatsaðferðir úr þeim aðferðum sem koma fram hjá hópnum (brainstorming) og láta þá búa til matsmælikvarða um þá matsaðferð sem þeir velja. Einnig að hafa jafningjamat þannig að hinir nemendurnir meti frammistöðu og skilning á verkefninu.

Þessi aðferð hvetur nemendur til að taka ábyrgð á eigin námi og hvernig þeir geti sýnt fram á skilning og þekkingu á viðfangsefninu. Þetta styður einnig við hugmyndir Gardners um fjölgreind og gefur nemendum tækifæri á að sýna hæfni sína á fleiri sviðum. Nemendur með námsörðugleika fá þarna tækifæri til að sýna sterkar hliðar og öðlast virðingu innan nemendahópsins.

 

 
©Eygló R. Sigurðardóttir - 2007
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia