| Þessi
hugmynd segir frá hvernig hægt er að rifja
upp námsefni með nemendum fyrir próf eða
námsmat þar sem allir eru prófaðir
úr saman námsefninu.
- Sex
nemendur sitja saman í hring (við borð)
- Allir
nemendur fá autt blað
- Sérhver
nemandi skrifar eina staðreynd eða eitt atriði
sem hann man eftir úr námsefni sem verið
er að rifja upp.
- Nemandinn
réttir svo blaðið til þess nemanda
sem situr honum á hægri hönd.
- Sá
nemandi þarf að skrifa aðra staðreynd
um námsefnið. Það má ekki
vera það sama og komið er á blaðið
og ekki það sama og nemandinn hefur áður
skrifað. Þetta er gert sex sinnum eða þangað
til öll blöðin eru komin í hring
- Einn
nemandi úr hópnum (helst einhver sem hefur
sig alla jafna ekki mikið frammi) les blaðið.
Annar nemandi les svo þeirra staðreyndir, það
sem ekki hefur komið fram áður. Það
fer svo eftir viðbrögðum og áhuga
hversu mörg blöð eru lesin, en næstu
nemendur lesa eingöngu þær staðreyndir
sem ekki hafa komið fram áður.
Reynslan
hefur sýnt að nemendur eru almennt ánægðir
með þessa aðferð við upprifjun á
námsefni fyrir próf. Hægt er að
nota þessa aðferð á öllum aldursstigum.
|