|
Veggspjöld
eru oft afrakstur hópavinnu og notað sem hluti
af námsmati þar sem hópurinn rannsakar
eitthvað viðfangsefni og kynnir svo niðurstöðuna
munnlega. Þessi aðferð hefur nokkra kosti,
m.a. að hóparnir fá mismunandi verkefni
sem þeir svo kynna fyrir öðrum nemendum og
þeir þurfa að velta fyrir sér hvernig
þeir ætla að koma vitneskjunni og niðurstöðunum
til skila þannig að það verða öðrum
nemendum til gagns. En nemendur eru ekki þjálfaðir
kennarar og gallinn er oft sá að nemendur hafa
takmarkaðan skilning og getu til að koma efninu
nógu vel til skila þannig að hinir nemendurnir
hafi gagn af. Annar galli er sá að þeir
eru ekki nógu færir í að velja atriði
sem eru áhugaverð og viðeigandi.
Ein
leið til að eiga við þessa galla er að
sjá til þess að veggspjöldin innihaldi
spurningar sem koma frá öðrum nemendum.
Vinnuferlið
er þannig:
- Nemendur
rannsaka og klára veggspjaldið sitt.
- Öll
veggspjöldin eru hengd upp á vegg með
auðu ,,spurningablaði" við hvert veggspjald.
- Nemendurnir
ganga um stofuna með sínum hóp og skoða
veggspjöldin. Við hvert veggspjald skrifa þeir
2-3 spurningar sem þeir vilja fá svör
við (varðandi efnið á veggspjaldinu).
Þeir þurfa að setja a.m.k. eina spurningu
af hvorri tegund spurninga, (a) eitthvað sem er ekki
alveg ljóst af veggspjaldinu: Er þetta....?
Hvað er....? og (b) spurningu sem eykur skilning þeirra
á viðfangsefninu: Hvað ef....? Hvað
gæti gerst ef....?
- Hver
hópur tekur saman spurningarnar á sínu
veggspjaldi og notar þær við undirbúning
kynningarinnar. Kennarinn getur aðstoðað þá
við að flokka spurningarnar og setja saman þær
spurningar sem eru sambærilegar.
- Í
kynningunni lesa hóparnir spurningarnar sem þeirra
hópur fékk og fjalla eingöngu um það
efni sem bekkjarfélagar þeirra vildu vita
eitthvað um. Allir í hópnum eiga að
taka þátt í að svara spurningunum.
Það er allt í lagi þó að
þeir geti ekki svarað öllum spurningunum,
þeir varpa þeim þá út
í bekkinn. ,,Veit einhver svarið við þessu"?
Nemendum finnst oft mjög gaman að svara slíkum
spurningum og góðar umræður spretta
upp. Stundum er viðeigandi að kennarinn aðstoði,
en þær upplýsingar koma þá
fram vegna áhuga og viðbragða frá
nemendum.
|