Á forsíðu PEEL-námsmat
Upplýsingavefur um PEEL-verkefnið
Upplýsingar um námsmatsvef PEEL
Hvað er árangursríkt námsmat?
Jákvætt og neikvætt námsmat
Leiðsagnarmat - Frammistöðumat - Sjálfsmat/jafningjamat - stöðugt alhliða námsmat
Reynslusögur PEEL-kennara um námsmat
Heimildir

,,Segðu mér það sem þú veist"

Yfirleitt prófum við nemendur úr því sem við höfum sagt þeim. Ef þeir vita ekki svarið, gerum við ráð fyrir að þeir viti ekkert um það efni og þeir upplifa sig slaka námsmenn. Þeir fá ekkert tækifæri til að sýna hvað þeir vita í raun um efnið og ef það er byggt á almennri þekkingu en ekki því sem við höfum kennt þeim um efnið þá er það ekki á prófinu.

Algeng spurning nemenda er: ,,Kemur þetta á prófinu?" Og auðvitað verðum við að svara því játandi því að ef það kemur ekki á prófinu þá er það ekkert merkilegt. Með þessar hugmyndir nemenda hefur einn PEEL-kennari þróað próf sem gefur nemendum tækifæri á að sýna það sem þeir vita um efnið og hvernig þeim tekst að koma því í samhengi.
Þetta er bráðsniðug hugmynd sem hægt er að nota í flestum námsgreinum.

Prófið: Allir nemendur fá nokkur eintök af auðum blöðum

  1. Hugarflug: Prófið byrjar á hugarflugi með bekknum. Allir verða að leggja fram að minnsta kosti eitt orð og öll orð eru viðurkennd og skráð á töfluna (eins og venja er á hugarflugsfundum). Nemendurnir hafa þá allir fengið eitt stig. Allir sem koma með fleiri orð fá eitt stig fyrir hvert orð (muna að skrá stigin í bekkjarlista). Listinn er uppistaða prófsins og er látinn standa á töflunni á meðan prófið stendur yfir.
  2. Skilgreining: Nemandinn velur sex orð af listanum og skilgreinir/útskýrir þau. Fær eitt stig fyrir hverja skilgreiningu.
  3. Málsgrein: Nemandi velur átta orð (ekki þau sömu og áður) og býr til efnisgrein/málsgrein úr þeim sem er rétt og í samhengi við efnið.
  4. Tenging: Nemandi velur fjögur orð úr listanum (má vera eitthvað af þeim sem áður er valið) og setur orðin inn í eftir farandi setningar:
    1. _____________ er/eru ______________
    2. ______________ er ekki/eru ekki __________________
    3. ________________ getur ___________________
    4. __________________ getur ekki __________________
      Nemendur eru minntir á að hvert orð þarf að nota fyrir allar setningarnar og setningarnar verða því 16 samtals. Eitt stig er gefið fyrir hverja ,,fernu" (4 setn.) og þær verða að vera réttar
  5. Að tengja saman: Næst búa nemendur til hugarkort með eins mörgum orðum úr listanum og þeir geta. Gæta verður þess að tengingar milli orðanna séu útskýrðar. Gefið er eitt stig fyrir hverja rétta tengingu.
  6. Skýringamynd: Nemandi teiknar skýringarmynd af völdu efni sem við á og útskýrir hvers vegna hann ætti að fá 5 stig fyrir myndina.
  7. Spurningar: Nemandi býr til 3 spurningar og svör við þeim úr efninu. Fyrir hverja spurningu og svar eru gefin 3 stig. Eftir það er prófinu skilað til kennara og hann fer yfir það og reiknar stigin.

 

 
©Eygló R. Sigurðardóttir - 2007
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia