|
Þessi
saga segir frá hugmynd um að efla samræður
nemenda og að auka skilning þeirra á viðfangsefninu.
Markmiðið er að nemendur hlusti vel á
framsögn bekkjarfélaga og geti svarað spurningum
þeirra um efnið.
Nemendur
eiga að velja sér grein í tímariti
(t.d. Lifandi vísindi), lesa hana vel og undirbúa
3-5 mínútna ræðu eða framsögn
um efnið. Einnig eiga þeir að skrifa niður
fjórar spurningar (ekki of erfiðar) um efnið
sem þeir ætla að spyrja nemendur í
lok kynningarinnar. Tilgangurinn með því
er að fá aðra nemendur til að hlusta
vel á innihald kynningarinnar. Nemandinn á
svo í lokin að spyrja bekkjarfélagana
spurninga úr efninu. Þeir skrifa niður
svörin og nemandinn tekur svo svörin og fer yfir
þau heima.
Eitt
stig er gefið fyrir hvert rétt svar og stigin
eru svo talin þegar nemendurnir afhenda bekkjarfélögunum
úrlausnirnar. Svörin eru rædd og ,,eigandi"
spurninganna gerir grein fyrir réttum svörum.
Reynsla
PEEL-kennara sýndi að nemendum fannst þetta
spennandi og þeir hlustuðu vel á bekkjarfélagana.
Sumir skrifuðu glósur á meðan á
kynningunni stóð og athyglisvert var að sumir
flytjendurnir lögðu áherslu á svörin
á meðan þeir töluðu.
Önnur
útfærsla:
Hægt er að láta nemendur gera spurningar
um álitamál úr efninu. Til dæmis
spurningar sem innihalda ekki bara staðreyndir heldur
skoðanir eða viðhorf.
|