Á forsíðu PEEL-námsmat
Upplýsingavefur um PEEL-verkefnið
Upplýsingar um námsmatsvef PEEL
Hvað er árangursríkt námsmat?
Jákvætt og neikvætt námsmat
Leiðsagnarmat - Frammistöðumat - Sjálfsmat/jafningjamat - stöðugt alhliða námsmat
Reynslusögur PEEL-kennara um námsmat
Heimildir

Námsmat til að læra af (logbook)

Þessi saga segir frá eins konar dagbók (logbook) um námið, þar sem nemendur skrifa í bókina með ákveðnu millibili um skilning sinn á náminu og námsefninu.

Markmiðið er

  • að vekja upp vitund nemenda fyrir mismunandi sjónarmiðum á gæðum námsins
  • að stuðla að því að námsmatið verði hluti af náminu
  • að auka lesskilning nemenda

Nemendur búa til bók sem er eins konar dagbók um námið og skrá í hana það sem þeir hafa lært í skólanum og heima. Það hvetur þá einnig til að velta fyrir sér hvaða leikni þeir þurfa að búa yfir til að geta komið hugsunum sínum á blað.

Nemendur fá eftirfarandi fyrirmæli í upphafi annar (eða skólaárs):

  • Þú átt að skrifa dagbók yfir nám þitt í ________(t.d. íslensku) á þessari önn/ári
  • Þú skilar dagbókinni fjórum sinnum yfir önnina (nánari dags.sett hér)
  • Þú átt að koma með dagbókina í alla ________tímana (íslenskutímana)

Bókin krefst þess að þú fylgist með öllu sem þú skrifar, lest og ígrundar og hún verður eins konar ferilbók um:

  • áætlanir, uppkast og lokaskrif (hreinskrift)
  • upplýsingar um texta sem þú hefur lesið, heyrt eða séð, skáldsögur, ljóð, smásögur, teiknimyndir, dagblaðagreinar, kvikmyndir, gagnrýni, söngvar, málverk eða hvaða texta sem þú vilt
  • viðbrögð þín við því sem þú lest, heyrir eða sérð
  • úrdrátt úr bók (skáldsögu) sem þú velur að lesa
  • hugleiðingar um efni sem þú hefur valið að lesa og hvaða áhrif það hafði á þig
  • viðbrögð þín við verkefni sem þú vinnur í skólanum eða heima
  • viðbrögð þín við því hvernig gengið hefur að skrifa í bókina, í lok ársins

 

 
©Eygló R. Sigurðardóttir - 2007
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia