Á forsíðu PEEL-námsmat
Upplýsingavefur um PEEL-verkefnið
Upplýsingar um námsmatsvef PEEL
Hvað er árangursríkt námsmat?
Jákvætt og neikvætt námsmat
Leiðsagnarmat - Frammistöðumat - Sjálfsmat/jafningjamat - stöðugt alhliða námsmat
Reynslusögur PEEL-kennara um námsmat
Heimildir

Heimapróf - heimanám

Kennarar fá oft alls konar afsakanir frá nemendum um heimanámið og hvers vegna þeir skila ekki heimanámi á réttum tíma. Þessi aðferð gæti fækkað afsökunum hjá nemendum varðandi heimanám þar sem heimanámið er hluti af námsmati vetrarins.

Í upphafi námsannar (eða námslotu) fá nemendur lista yfir verkefnin (t.d.30 verkefni/spurningar) og þeir fá að velja nokkur verkefni (t.d. 15 verkefni) sem á að leysa heima. Nemendur fá að velja í hvaða röð þeir leysa verkefnin og þeir eiga t.d. að skila þremur verkefnum á tveggja vikna fresti (líka hægt að hafa eitt verkefni á viku). Verkefnin eru fjölbreytt, miserfið, ólík og krefjast mismunandi hugsunar. Þau tengjast öll því námsefni sem farið er í á önninni í kennslustundum.

Getumiklir nemendur geta klárað þau á styttri tíma ef þeir vilja en öll verkefnin eru með leiðbeiningum og gerð þannig að foreldrar geti aðstoðað við heimavinnuna.

Reynsla PEEL-kennara sýnir að flestir eru ánægðir með þetta fyrirkomulag og aðeins örfáir kláruðu ekki verkefnin sín. Sumir gerðu fleiri verkefni en þeir áttu að gera. Nemendur voru ánægðir með að geta valið sér verkefni og hvenær þeir gerðu verkefnin.

Flestir vinna verkefnin í þeirri röð sem efnið er kennt í skólanum og geta þannig tengt heimanámið við það sem er að gerast í kennslustofunni. Með því að láta nemendur hafa öll verkefnin í upphafi þá byrja þau á því að lesa þau öll og reyna svo að velja léttustu verkefnin. Í raun vita þau ekki hvaða verkefni er léttast nema með því að lesa námsbókina og finna svarið.

Hægt er að láta nemendur skila verkefnunum í tölvupósti (fer eftir aldri og tölvukunnáttu nemenda).
Kennarinn metur svo lausnirnar og gefur umsögn sem hann skráir hjá sér.

Hugmynd: Ef ætlunin er að hafa skriflegt próf í lok námsannar þá er hægt að nota eitthvað af þessum verkefnum og spurningum. Kennarinn gæti í upphafi látið nemendur vita að lokaprófið sé úr þessum verkefnum og það hvetur þá nemendur til að leysa öll verkefnin.

 
©Eygló R. Sigurðardóttir - 2007
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia