Á forsíðu PEEL-námsmat
Upplýsingavefur um PEEL-verkefnið
Upplýsingar um námsmatsvef PEEL
Hvað er árangursríkt námsmat?
Jákvætt og neikvætt námsmat
Leiðsagnarmat - Frammistöðumat - Sjálfsmat/jafningjamat - stöðugt alhliða námsmat
Reynslusögur PEEL-kennara um námsmat
Heimildir

Að skrifa um ferlið

Þessi hugmynd snýst ekki um lokaútkomu eða afurð, heldur um ferlið sjálft. Þar krefst þess að nemendur hugleiði hvað þeir eru að gera og hvernig þeir komast að ákveðinni niðurstöðu.

Dæmi 1: Ritun:
Í stað þess að skrifa ritgerð eða sögu þá þurfa nemendur að skrifa hvernig þeir byggja upp sögu, hvað kemur fyrst, næst og síðast. Hvað þarf að koma fram í sögunni og fleira sem þeir hafa lært um sögugerð.

Dæmi 2: Stærðfræði:
Hér gætu nemendur þurft að útskýra reglur, aðferðir eða reikniaðgerðir. Þar sem áherslan er ekki á svarið sjálft heldur á það að nemendur geti útskýrt, skriflega eða munnlega, viðfangsefnið.

Þessi aðferð eykur mikilvægi skilnings á viðfangsefninu og nemenda gera sér þá betur grein fyrir tilgangi námsins. Þetta hjálpar kennurum líka til að sjá hvort að nemendur skilja það sem þeir hafa verið að kenna.

 
©Eygló R. Sigurðardóttir - 2007
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia