Á forsíðu PEEL-námsmat
Upplýsingavefur um PEEL-verkefnið
Upplýsingar um námsmatsvef PEEL
Hvað er árangursríkt námsmat?
Jákvætt og neikvætt námsmat
Leiðsagnarmat - Frammistöðumat - Sjálfsmat/jafningjamat - stöðugt alhliða námsmat
Reynslusögur PEEL-kennara um námsmat
Heimildir

Að tjá sig um umsagnir

Þetta verkefni snýst um að gera nemendur meðvitaðri um að námsmat sé hluti af náminu ekki eingöngu samansafn talna sem reiknast út í lok ársins og gefur eina einkunn. Kennararnir tóku eftir því að nemendur lásu varla þær umsagnir sem þeir skrifuðu á verkefni og próf og það virtist því ekki bera neinn árangur að gefa nemendum umsagnir.

Til að gera nemendur virkari í eigin námsmati þá létu þeir nemendur skrifa umsagnir um umsagnir kennarans. Þeir segja þá hvað þeim finnst um það sem kennarinn skrifar. Ef þeir eru ósáttir við umsögn kennarans geta kennarinn og nemandinn skoðað verkefnið/prófið saman og komist að sameiginlegri niðurstöðu.

Ein útfærsla af þessari aðferð er að láta nemendur vera með eins konar ,,skilaboðabók" þar sem fram fara samskipti nemenda og kennara um verkefni og próf. Hægt er að nota slíka bók einnig fyrir önnur samskipti s.s. um hegðun, vinnusemi og samskipti við foreldra.

 
©Eygló R. Sigurðardóttir - 2007
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia