Þessi
saga gengur út á það að nemendur
búa allir til skriflegt próf og þeim
er svo dreift handahófskennt á aðra nemendur
bekkjarins.
Markmiðið
með þessari aðferð er:
- að
fá nemendur til að hugsa um hvernig þeir
læra, hvað og hvers vegna
- að
nemendur og kennarar vinni saman
- að
hugsa um, skilja og taka ákvarðanir um námið
- að
ræða um námsefnið
Vinnuferlinu
er hægt að skipta í eftirfarandi þrep:
- Ræða
við nemendur um að þeir búi sjálfir
til spurningar á prófið. Í byrjun
er best að láta nemendur vinna tvo og tvo saman.
- Ræða
við nemendur um spurningarnar
- afmarka
efnið
- hversu
margar spurningar
- hvað
prófið á að vera langt
- hvers
konar spurningar (krossaspurn, rétt/rangt,
stutt/löng svör)
- Ræða
um það sem skiptir máli varðandi
prófið, s.s.að skrifa vel og skiljanlega
og hvers konar spurningar er best að nota
- Ræða
um að sérhver nemandi býr til sitt eigið
próf og að einhver annar nemandi fær
það og þarf að leysa það
(ræða um að það sé allt
í lagi þó að strákur fái
stelpupróf og öfugt)
- Ræða
um stigagjöf á prófinu og hvaða
vægi hver spurning hefur. (Kennari getur búið
til sína útgáfu af prófinu
sem nemendur leysa líka og geta svo valið hvort
prófið er notað í einkunnagjöfinni).
- Nemendur
búa prófið til heima og einnig lausnarhefti
- Prófin
eru lögð fyrir nemendur (af handahófi)
- Eftir
prófið eru prófblöðin afhent
þeim sem bjuggu til prófið og þeir
fara með það heim og fara yfir prófið
og gefa einkunn
- Prófið
er afhent eiganda
- Kennarinn
skráir einkunnir
- Nemendur
leysa kennaraprófið
- Nemendur
fylla út eyðublað þar sem þeir
segja frá hvernig þeim líkaði
þetta fyrirkomulag
- Bekkurinn
skiptir á milli sín kennaraprófinu
og fara yfir prófið hjá samnemenda sínum
(með lausnarblaði frá kennaranum)
Reynsla
kennara sem hafa notað þessa aðferð sýnir
að nemendur læra meira þegar þeir
búa til prófið sjálfir, þeir
læra á því að fara yfir og
leiðrétta próf frá öðrum
og margir sögðust hafa gert sér betur grein
fyrir starfi kennarans. Og síðast en ekki síst
þá upplifðu nemendur ekki það
stress og þann kvíða sem fylgir því
að fara í próf. |