Hér
eru dæmi um sögur frá PEEL-kennurum. Sögurnar
fjalla allar um námsmat, sem dæmi má
nefna skrifleg próf, sjálfsmat, jafningjamat
og stöðugt alhliðamat. Sögurnar eru eins
konar reynslusögur kennara þar sem þeir
eru að glíma við algeng vandamál
í kennslu s.s. að nemendur læri ekki
af mistökum í prófi, áhuga- og
ábyrgðaleysi nemenda og að nemendur lesa
ekki fyrirmælin.
Flestar sögurnar eiga við miðstig, unglingastig
og jafnvel framhaldsskóla og margar henta öllum
aldursstigum.
Allir
búa til próf
Markmiðið að fá nemendur til að
hugsa hvað þeir læra um, hvernig og hvers
vegna.
Dagbók
(logbook) um námið
Þessi saga segir frá eins konar dagbók
um námið, þar sem nemendur skrifa í
bókina með ákveðnu millibili um
skilning sinn á náminu og námsefninu