Síðustu
20 ár hafa PEEL-kennarar þróað,
aðlagað og prófað ýmsar árangursríkar
kennsluaðferðir sem þeir skrá hjá
sér og deila með öðrum kennurum. Margar
þessara aðferða hafa verið gefnar út
í tímaritinu PEEL SEEDS. Síðar
var farið að gefa það út á
geisladisk og nú er hægt að nálgast
þessar 1300 sögur og aðferðir kennara
á vefsíðu
PEEL. Sögurnar eru flokkaðar í 18 flokka
og hægt er að leita að sögum eftir efni,
útgáfuári, vandamálum
kennara, undirstöðuatriðum
í kennslu eða kennsluaðferðum. Hægt
er að leita t.d. hvað má gera þegar
nemendur gera sömu mistökin aftur og aftur, fá
góð ráð til að kenna í
getublönduðum bekk og um hegðunarvandamál
í kennslustofu.
Á
vefsíðu PEEL er hægt er að skrá
sig á póstlista PEEL. Reglulega eru haldar
ráðstefnum og þing þar sem PEEL-kennarar
koma saman og skiptast á skoðunum. |