|
Eitt
af þeim verkefnum sem kennarar í PEEL-verkefninu
hafa áhyggjur af
er námsmatið. Kennararnir hafa tekið eftir
því að nemendur læra ekki af mistökum
í prófi, lesa ekki fyrirmælin, gera
sömu mistökin aftur og aftur og eiga erfitt með
að sjá tilgang með náminu. Þeir
vilja auka ábyrgð nemenda á eigin námi
jafnframt því að nemendur taki meira þátt
í námsmatinu og geri sér grein fyrir
þætti námsmatsins strax í upphafi
námsins.
Í
gagnagrunni PEEL
eru núna um 120 verkefni/sögur um námsmat
og hér má
finna nokkrar áhugaverðar sögur úr
kennslunni þar sem PEEL-kennarar eru að prófa
sig áfram með nýjar áherslur í
námsmati. Þeir eru einnig með sögur
af hefðbundnum skriflegum prófum, um undirbúning
prófa og hvernig hægt er að búa
nemendur betur undir próf þannig að þeir
læri af þeim.
Námsmatið er einn þáttur í
að auka árangursríkt nám og fjölbreytni
í skólastarfi.
Ég
hef valið þær sögur sem mér
finnst góðar og reynt að hafa ólík
og fjölbreytt dæmi. Vitaskuld eru þarna
ýmis dæmi sem eru ekki ný af nálinni
og margir þekkja eflaust einhver dæmi úr
eigin kennslu. En það er von mín að
þessar reynslusögur gagnist íslenskum
kennurum og vonandi bætast nýjar sögur
við.
Samkvæmt
Aðalnámsskrá
grunnskóla er mikilvægt að leggja áherslu
á fjölbreytt
námsmat og að námsmatið sé
hluti af skólastarfinu. Á þessum vef
eru einnig upplýsingar um árangursríkt
námsmat, jákvætt
námsmat og fjölbreytt
námsmat.
|