Námsmat
hefur mikil áhrif á sjálfsmynd og sjálfstraust
nemenda. Námsmat á ekki að nota til að
gagnrýna nemendur á neikvæðan hátt.
Það á að leggja áherslu á
það sem nemandinn getur og veit en ekki á
það sem hann veit ekki. Námsmatið á
einnig að vera hvetjandi fyrir nemendur og að auka
áhuga þeirra á náminu. Það
er mikilvægt að þeir líti á
námsmat með jákvæðum augum og
það sé hluti af námsferli þeirra.
Námsárangur getur virkað bæði
neikvætt og jákvætt á nemendur.
Það er mikilvægt að skoða þann
árangur sem hefur náðst hefur frekar en
það sem illa gengur og að hafa jákvæðar
umsagnir frekar en að gagnrýna.
Jákvætt
námsmat :
eykur
framfarir
verðlaunar
markmið og árangur
hvetur
til markmiðssetningar og löngunar til að
ná hærra
hvetur
nemendur til að finnast námið vera einhvers
virði
hvetur
nemendur til að leysa vandamál á jákvæðan
hátt
hvetur
nemendur til að skoða námið í
stærra samhengi svo að þeir sjái
heildarmarkmiðið
skapar
góð tengsl milli nemenda og kennara með
því að sýna markmiðum nemenda
áhuga
hvetur
nemendum til að taka ábyrgð á eigin
námi
hvetur
nemendur til að treysta eigin færni og skilning
Neikvætt
námsmat :
getur
ofgert mistök og lélegt gengi
getur
haft slæm áhrif ef nemendur ná ekki
þeim markmiðum sem þeir stefndu að
getur
verið of markviðmiðað án þess
að miðað sé við fyrra gengi nemendans
getur
dregið fram óæskileg viðbrögð
frá bekkjarfélögum
getur
ómeðvitað stuðlað að samkeppni
milli bekkjarfélaga
getur
stuðlað að of mikilli áherslu á
einkunnir
getur
haft áhrif á metnað nemenda þar
sem getulitlir nemendur missa allan metnað í
náminu vegna þess að þeir sjá
ekki fram á að geta sýnt góðan
námsárangur