Á forsíðu PEEL-námsmat
Upplýsingavefur um PEEL-verkefnið
Upplýsingar um námsmatsvef PEEL
Hvað er árangursríkt námsmat?
Jákvætt og neikvætt námsmat
Leiðsagnarmat - Frammistöðumat - Sjálfsmat/jafningjamat - stöðugt alhliða námsmat
Reynslusögur PEEL-kennara um námsmat
Heimildir

Ekki er allt námsmat gagnlegt og nauðsynlegt. Of erfið og ítarleg próf geta haft neikvæð áhrif á nemendur og kennarar þurfa að íhuga vel hvers konar námsmat hentar sérhverju viðfangsefni, nemendum og markmiðum námsins.

Árangursríkt námsmat:

  • tekur mið af umfangi námsins
  • er hluti af námsferlinu, bæði fyrir nemendur og kennara
  • stjórnast af ákveðnu ferli með viðeigandi gögnum
  • eflir árangursríkt nám þegar það er notað á réttan hátt
  • ákvarðar hvaða skref skal taka næst í náms- og kennsluferlinu
  • býður upp á jákvæða leið til að staðfesta hæfileika, getu og skilning
  • hefur fjölbreyttan tilgang, það hjálpar bæði nemendum og kennurum að skoða stöðuna miðað við markmiðin og getur þannig stuðlað að framförum
  • er fjölbreytt, s.s. munnlegt, skriflegt, einstaklings- eða hópmat, fyrirvaralaust eða undirbúið, háð aðstæðum hverju sinni
  • hjálpar kennurum að koma til skila réttri þekkingu og svörun (feedback)
  • er hægt að nota til að fylgjast með félagslegum, bóklegum og hegðunar framförum nemenda.

Námsmat er árangursríkt þegar:

  • nemendur taka virkan þátt í námsmatinu
  • það er notað til að hjálpa nemendum til að bæta sig í náminu
  • það er hluti af námsferlinu
  • það tengist vel viðfangsefninu, markmiðum og námsskránni
  • það er vel framsett og útskýrt fyrir nemendum

 

 
©Eygló R. Sigurðardóttir - 2007
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia