PEEL-kennarar
hafa komist að því hvað einkennir góða
námsmenn og hafa sett upp lista með 12 atriðum
sem þeir telja mikilvægt til að stuðla
að góðum námsaga.
Góðir námsmenn:
Kanna
persónulegan skilning á kennslu og efni
og fá frekari upplýsingar ef þörf
þykir. Segja kennaranum hvað þeir skilja
ekki.
Finna
tilgang með verkefninu sem liggur fyrir.
Gera
grófa áætlun í upphafi.
Búast
við og gera ráð fyrir öllum mögulegum
lausnum.
Leyta
að villum og finna réttar lausnir við þeim.
Finna
tengingu milli:
a. Mismunandi aðgerða og hugmynda
b. Ólíkra viðfangsefna
c. Skólaverkefnis og daglegs lífs
Leita
að veikleikum í eigin skilningi og að samræma
eigin skýringar miðað við ólíkar
aðstæður.
Stinga
uppá nýjum aðferðum og vali á
verkefnum.
Skoða
með gagnrýnum augum texta og svör sem
kennarinn kemur með.
Koma
með nýjar hugmyndir, nýja sýn
og ígrundaðar útskýringar.
Rökstyðja
skoðanir.
Bregðast
við og skoða hugmyndir frá öðrum
nemendum