Verkefnið
PEEL (Project for Enhancing Effective Learning) hófst
árið 1985 þegar hópur kennara í
framhaldsskóla og fræðimanna í háskóla
í Ástralíu ákváðu
að vinna saman. Þeir höfðu áhyggjur
af fjölda nemenda sem var óvirkur, hugsunarlaus
og ósjálfsstæðir í námi,
jafnvel þó að kennslan væri augljóslega
árangursrík. Þeir ákváðu
að rannsaka skólastofu með það
fyrir augum að gera námsumhverfið hvetjandi
og örva nám nemendanna svo að þeir
verði upplýstari, sjálfstæðari
og meðvitaðri um sína vitsmunalegu getu.
Verkefnið fékk enga styrki og var ekki gert að
frumkvæði yfirvalda. PEEL-kennararnir ákváðu
að hittast reglulega í sínum eigin tíma
og deildu með sér og ræddu sína
reynslu, hugmyndir og nýjar leiðir.
Í upphafi var ætlunin að verkefnið
tæki tvö ár en kennararnir vildu halda
áfram og brátt fór þetta að
breiðast út um Ástralíu. Núna,
rúmlega 20 árum síðar, hefur verkefnið
dreifst um alla Ástralíu og víða
um heim, m.a. til Danmerkur, Svíþjóðar
og Bretlands (TEEP).
PEEL-útgáfan hefur gefið út bækur,
tímarit og geisladiska með sögum
og reynslu kennara sem hafa tekið þátt
í verkefninu. Hægt er að panta bækur
og geisladisk af vefsíðu PEEL. Slóðin
er http://www.peelweb.org
PEEL
er starfrækt með þeim hætti að
hópar óháðra og sjálfstæðra
kennara í grunnskóla eða framhaldskóla
hittast reglulega og ræða hugmyndir og lausnir
varðandi nemendur sem eru óvirkir og ósjálfstæðir
í námi. Þeir ræða saman faglega,
finna lausnir og skrá niður reynslusögur
af aðferðum og leiðum sem hafa gagnast þeim
vel í kennslustofunni. Þessar sögur eru
svo gefnar út á geilsadisk og settar í
gagnagrunn PEEL, þar sem allir aðrir PEEL-kennarar
hafa aðganga að þeim og geta nýtt sér
í sinni kennslu. Þessar sögur er einnig
hægt að nálgast á vefsíðu
PEEL gegn gjaldi (fyrir þá sem ekki eru
í PEEL). Þeir kennarar sem senda inn sögur
fá frían aðgang að gagnagrunninum.
PEEL
hjálpar kennurum að prófa nýjar
hugmyndir í kennslu og breyta viðhorfum þeirra
til kennslu og náms. Kennslan verður nemendamiðaðri
og kennarar beina athyglinni að námi nemenda
og aðferðum sem efla og styrkja nemendurna. Markmið
kennaranna verður að hjálpa nemendunum að
breyta viðhorfi þeirra, skilningi og hegðun
í þá átt að þeir verði
ábyrgari og meðvitaðri um sitt eigið
nám.
|