Kynning á PEEL-verkefninu sem hófst í
Ástralíu og fjallar um hvernig hægt
sé að auka árangursríkt nám
og bæta skólastarf. PEEL-verkefnið er unnið
í samstarfi kennara í grunnskólum og
menntaskólum annars vegar og fræðimanna
í háskólum hins vegar. Það
miðar að því að tengja fræðin
útí skólana og auka fagvitund kennara
og ánægju þeirra í starfi. Kennarar
skrá hjá sér ýmsar hugmyndir
sem ganga vel í kennslu, ræða faglega sín
á milli í litlum hópum og miðla
reynslu sinni til annarra kennara.
PEEL-námsmat
- viðbót við PEEL-vefinn
Nú
er í vinnslu íslenskur gagnagrunnum með
sögum frá íslenskum kennurum. Ef þú
lumar á góðri reynslusögu úr
kennslu eða skólastarfi þá endilega
sendu mér hana á eyglsigu@khi.is
Æskilegt er að sagan sé 1/2 - 1 blaðsíða,
þar sem fram kemur hvaða vandamál þú
varst að glíma við, hvað þú
gerðir og hvernig gekk. (Hér
eru nokkur dæmi um sögur). Ef þú
hefur einhverjar spurningar þá
sendu mér póst. |